Fréttir og tilboð

Silfurreynir, elsta tré Reykjavikur stendur við Aðalstræti

27.06.2011

Silfurreynir við Hótel Reykjavík CentrumEitt elsta tré borgarinnar er talið vera Silfurreynir sem stendur í Víkurgarðinum við Aðalstræti. Silfurreynirinn ( Sorbus intermedia ) var upprunalega gróðursettur árið 1884 af Hans Georg Schierbeck, þáverandi landlækni, en hann fékk til umráða hinn gamla kirkjugarð Reykvíkinga sem þarna hafði staðið í 800 ár og hóf tilraunaræktun á trjám, matjurtum og blómum. Schierbeck telst einn af frumkvöðlum þjóðarinnar í garðyrkju og skógrækt og á þeim tíma varð garðurinn fljótlega fyrirmynd landsmanna í ræktun.

Silfurreynir er svipmikið og harðgert tré og á uppruna sinn að rekja til Suður-Svíþjóðar en er ræktaður víða um heim.
Þann 21. ágúst árið 2010 tilnefndi Jón Gnarr borgarstjóri Silfurreynirinn Borgartréð 2010. Silfurreynirinn er um 130 ára gamalt og 10.9 m á hæð og er vel að titlinum komið. Silfurreynirinn getur náð 200 ára aldri og á því  að öllum líkindum eftir að lifa fram undir næstu aldamót.


Myndin af Silfurreyni er fengin að láni af Yrkjuvef

more

Fréttir og tilboð

Fjalakötturinn lokar vegna breytinga

Veitingastaðurinn Fjalaköttuinn mun loka tímabundið frá 20. apríl. Veitingastaðurinn mun fara í ...

Meira