Fréttir og tilboð

Hamingjustundir á Uppsölum

10.08.2010

Óskar Guðjónsson. Hamingjustund með djassveiflu á Uppsölum í AðalstrætiHamingjustund með djasssveiflu, "Happy Hour", verður frá klukkan 18 - 19 á  Uppsölum við hlið Fjalakattarins í Aðalstræti 16 alla daga Jazzhátíðarinnar, 14. - 29. ágúst. Þar munu listamenn kynna uppáhaldshljóðrit sín og/eða leika af fingrum fram.  Meðal þeirra sem þarna munu mæta með músíkina sína eru vel kunnir djasstónlistafólk eins og Sigurður Flosason, Haukur Gröndal, Óskar Guðjónsson, Sören Dahl Jeppesen, Ife Tolention, Samúel Jón Samúelsson og fleiri. Einnig verður boðið upp á ljósmyndasýningu frá liðnum hátíðum og jazzlífinu í landinu.

Það verður seiðandi sveifla á Uppsölum, eða eins og Duke Ellington sagði; "It Don't mean a Thing if it ain't got the Swing".

Fylgist með á Facebook

Nánari upplýsingum verða á vef jazzhátíðar www.reykjavikjazz.is

more

Fréttir og tilboð

Stúdío íbúðir til leigu

Húsið á Grjótagötu 4 er tveggja hæða staðsett í hjarta miðbæjarins í Grjótagötu 4. Í húsinu eru fj...

Meira