Fréttir og tilboð
Landnámssýningin og meðþví á Uppsölum
18.05.2010
Hvernig var lífið á landnámsöld? Það er tilvalið að kíkja með fjölskylduna á landnámssýninguna Reykjavík 871±2 sem fjallar um landnámið í Reykjavík. Sýningin byggir á kenningum fræðimanna um það sem fornleifar í Reykjavík geta sagt okkur um líf og störf þeirra sem fyrst settust hér að. Eftir sýninguna er upplagt að kíkja á Uppsali sem er við hliðina á og þar er hægt er að fá sér létta rétti, kökur og slaka á.
Það er notalegt að njóta veitinganna og fylgjast með líflegu mannlífinu í miðborg Reykjavíkur í huggulegu umhverfi gamla Aðalstrætis 16.
more
Fréttir og tilboð
Stúdío íbúðir til leigu
Húsið á Grjótagötu 4 er tveggja hæða staðsett í hjarta miðbæjarins í Grjótagötu 4. Í húsinu eru fj...
Meira






