Fréttir og tilboð

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík

07.09.2009

Kvikmyndahátíðin er einstakur menningarviðburður í Reykjavík og er nú haldin í sjötta sinn dagana 17. - 27. september.

Kvikmyndagerðarmenn alls staðar að úr heiminum hafa heimsótt Reykjavík í tengslum við hátíðina og fjöldinn sem sótt hefur viðburðina í kringum hátíðina hefur fjölgað frá ári til árs.
Það eru fjölmargar nýjungar í boði og má þar nefna m.a. Mánudagsmyndir – vídeókvöld hjá leikstjórum, þar sem margverðlaunaðir íslenskir kvikmyndaleikstjórar bjóða til vídeókvölds, hver í sínu heimahúsi.

Í ár er skemmtilegt frá því að segja að það bárust alls um 50 umsóknir frá íslensku kvikmyndagerðarfólki á kvikmyndahátíðina og verða sýndar íslenskar stuttmyndir sem og  kvikmyndir í fullri lengd. Það er greinilega mikil gróska í íslenskri kvikmyndagerð.

Það er upplagt að kíkja á Reykjavíkurhótelin eftir góða kvikmynd og njóta notalegs andrúmslofts og flottra veitinga í góðra vina hópi.

more

Fréttir og tilboð

Stúdío íbúðir til leigu

Húsið á Grjótagötu 4 er tveggja hæða staðsett í hjarta miðbæjarins í Grjótagötu 4. Í húsinu eru fj...

Meira