Fréttir og tilboð

Menningarnótt Reykjavíkurborgar

14.08.2009

Menningarnótt Reykjavíkurborgar 2009Menningarnótt Reykjavíkurborgar er haldin í fjórtánda sinn og hefur ávallt verið best sótti viðburður á Íslandi þar sem nær þriðjungur þjóðarinnar safnast saman í Reykjavík í menningarlegri gleði.
Þessi viðburðaríki dagur hefst á Reykjavíkurmaraþoninu og er búist við metþátttöku í ár í þessu sívinsæla hlaupi.
Þema Menningarnætur að þessu sinni verður „Húsin í bænum“. Með því er meiningin að vekja athygli á fegurð og margbreytileika húsanna í bænum og menningunni sem tengist þeim.
Það er ávallt mikil stemning í miðborginni og viðburðir á hverju götuhorni, á torgum, kaffihúsum, listasöfnu og kirkjum.

Reykjavíkurhótelin láta ekki sitt eftir liggja í þessum hátíðarhöldum og gestir sem gangandi er velkomið að hvíla lúnin bein í veitingasölum hótelanna og þiggja veitingar.

more

Fréttir og tilboð

Stúdío íbúðir til leigu

Húsið á Grjótagötu 4 er tveggja hæða staðsett í hjarta miðbæjarins í Grjótagötu 4. Í húsinu eru fj...

Meira