Spurningar & svör
Algengar spurningar og svör
Hvernig bóka ég hótelherbergi?
Hversu fljótt berst svar varðandi bókunina mína?
Hvert er greiðsluferlið?
Trúnaðarupplýsingar
Hvernig afbóka ég?
Er bókunarþjónustan án aukakostnaðar?
Er óhætt að gefa upp kortaupplýsingar? Hvers vegna er það nauðsynlegt?
Hvernig kem ég séróskum á framfæri varðandi dvöl mína?
Þarf að borga fullt gjald fyrir börn?
Hvað geri ég ef ég óska eftir að framlengja dvölina?
Hvenær get ég skráð mig inn?
Eru virðisauki og þjónustugjald innifalin í verðinu?
Hvernig bóka ég hótelherbergi?
Þú notar bókunarvél Reykjavíkurhótelanna og slærð inn lengd dvalar sem óskað er eftir með því að slá inn komu-og brottfarardagsetningu, fjölda herbergja og herbergjategund. Þegar þú velur hnappinn sem leitar að herbergjum birtist listi yfir herbergi sem í boði eru. Þá getur þú séð herbergjategund og heildarverð. Veldu herbergi sem þér líkar og smelltu á Bóka til að halda áfram. Þá opnast gluggi þar sem þú getur séð verðið á bókuninni þinni og ert beðin/inn um frekari upplýsingar. Þegar allir stjörnumerktir reitir hafa verið útfylltir ertu beðin/inn að samþykkja greiðsluskilmálana. Smelltu á Staðfesta hnappinn til að samþykkja og halda áfram. Að því loknu verður þú að gefa kreditkortaupplýsingar. Bókunarstaðfestingin verður send með tölvupósti á uppgefið netfang. Ef sú netstaðfesting berst ekki, vinsamlegast hafðu samband sem fyrst.
Hversu fljótt berst svar varðandi bókunina mína?
Bókunarstaðfestingin kemur samstundis vegna þess að framboð herbergja er stöðugt uppfært í kerfinu. Hvert og eitt hótel er þó ábyrgt fyrir öllu því er viðkemur bókunarstjórnun í kerfinu.
Hvert er greiðsluferlið?
Dreginn er af kortinu þínu sá kostnaður sem gefinn var upp þegar þú bókaðir herbergið. Verð og framboð herbergja er ekki hægt að tryggja fyrren greiðsla hefur borist rafrænt. Innborgunin fæst ekki endurgreidd.
Trúnaðarupplýsingar
Þær upplýsingar sem krafist er meðan á skráningarferlinu stendur eru nauðsynlegar fyrir hótelið og bókunardeildina til að framkvæma bókunarbeiðnina. Farið verður með allar upplýsingar sem trúnaðarmál og þær sendar í gegnum dulkóðaða rás sem tryggir fyllsta öryggi. Kreditkortaupplýsingar þínar, sem eru nauðsynlegar til að tryggja bókunina, eru einnig sendar á öruggan hátt í gegnum varinn bankanetþjón (SSL Secure Server).
Hvernig afbóka ég?
Ef þú þarft að afbóka af einhverri ástæðu er nauðsynlegt að hringja í 514 6000 eða senda tölvupóst til bókunardeildarinnar á reservations@reykjavikcentrum.is
Afbókun verður að berast 48 stundum fyrir komutíma að öðrum kosti verður ein nótt dregin af uppgefnu korti. Ef þú hefur einhverjar spurningar eða athugasemdir varðandi fyrirframgreiddu bókunina þá vinsamlegast hafðu samband við móttökuna.
Er bókunarþjónustan án aukakostnaðar?
Já, hótelbókanir í gegnum kerfið okkar eru án aukakostnaðar. Þú þarft aðeins að greiða fyrir sérvalda hótelþjónustu.
Er óhætt að gefa upp kortaupplýsingar? Hvers vegna er það nauðsynlegt?
Á meðan á bókunarferlinu stendur er beðið um kreditkortaupplýsingar í einstökum tilfellum. Fyrirtæki okkar notar nýjustu dulkóðunartækni (SSL), þannig að allar upplýsingar um þig eru öruggar og enginn óviðkomandi hefur aðgang að þeim. Hótelið biður um þessar upplýsingar sem tryggingu.
Hvernig kem ég séróskum á framfæri varðandi dvöl mína?
Hægt er að fara fram á séróskir þegar bókunin er gerð á netinu. Ekki er hægt að ábyrgjast að við verðum við óskunum en þeim er fylgt eftir við innskráningu og fer það eftir framboði, við munum gera okkar ýtrasta til að uppfylla þær. Ef þú hefur sérþarfir eða spurningar varðandi beiðnina vinsamlegst hafðu þá samband beint við hótelið.
Þarf að borga fullt gjald fyrir börn?
Í flestum tilvikum er ekki krafist gjalds fyrir barn undir 12 ára aldri í aukarúmi sem deilir herbergi með foreldrum.
Hvað geri ég ef ég óska eftir að framlengja dvölina?
Til að nýta þér áfram kostina við okkar lága verð, ættir þú að gera aðra bókun hjá okkur. Ef þú bókar framlenginguna beint á hótelinu þarftu að greiða annað verð sem er venjulega mun hærra.
Hvenær get ég skráð mig inn á hótelið?
Almenna reglan hjá hótelum á Íslandi er að innskráning er eftir kl. 14:00 og útskráning er fyrir kl. 12:00 á hádegi.
Eru virðisauki og þjónustugjald innifalin í verðinu?
Jú virðisauki og þjónustugjald er innifalið í uppgefnu verði.
Fréttir og tilboð
Stúdío íbúðir til leigu
Húsið á Grjótagötu 4 er tveggja hæða staðsett í hjarta miðbæjarins í Grjótagötu 4. Í húsinu eru fj...
Meira






