Um hótelið
Hótel Reykjavík Centrum - þar sem allt er iðandi í menningu, lífi og fjöri
Hótel Reykjavík Centrum er í hjarta borgarinnar, byggt á gömlum grunni – í bókstaflegri merkingu. Hótelið er staðsett í nýuppgerðri gamalli byggingu, Aðalstræti 16, en elsti hluti hússins var byggður árið 1764. Beggja megin við hótelið og fyrir aftan það eru nýbyggingar sem gerðar eru eftir sögufrægum reykvískum húsum, Fjalakettinum og Uppsölum. Hótelið er í öllum þremur byggingunum og tengibyggingu og útlit hótelsins sótt til byggingarlistar Reykjavíkur upp úr aldamótunum 1900. Við byggingu hótelsins komu í ljós rústir skála frá landnámsöld og í maí 2006 var opnuð glæsileg sýningaraðstaða undir hótelinu sem Reykjavíkurborg rekur. Þar er skálarústin varðveitt og hægt er að virða hana fyrir sér og skoða sýningu henni tengdri. Við uppgröftin fundust m.a. elstu mannvistarleifar á Íslandi frá því um 870.
Á hótelinu eru 89 herbergi með öllum nútímaþægindum svo sem gervihnattasjónvarpi, síma, míni-bar, útvarpi, straujárni og strauborði, öryggishólfi og te og kaffisetti. Baðherbergi fylgja öllum herbergjum, ýmist búin sturtu eða baðkari. Á hótelinu eru tveir ráðstefnusalir sem rúma allt að 40 manns. Fyrsta flokks þjónusta er á hótelinu, bæði herbergja- og porterþjónusta, ásamt góðri aðstöðu fyrir gesti í viðskiptaerindum.
Við lífæð borgarinnar
Á hótelinu leggjum við upp með að gestir okkar upplifi alvöru Reykjavíkurstemmningu í sögufrægum húsum við eina elstu götu borgarinnar. Heimsókn á veitingastaðinn Fjalaköttinn fullkomnar upplifunina en hann sérhæfir sig í eldamennsku á þjóðlegum réttum úr úrvals íslensku hráefni. Auk þess er notalegur bar á hótelinu; Uppsalir, þar sem hægt er að slaka á eftir annasaman dag í borginni.
Miðbær Reykjavíkur iðar af lífi frá morgni og fram á nótt svo ávallt er mikið um að vera í kringum hótelið. Verslanir, veitingastaðir og skemmtistaðir eru í göngufæri og stutt á söfn og aðrar menningarstofnanir.
Fréttir og tilboð
Stúdío íbúðir til leigu
Húsið á Grjótagötu 4 er tveggja hæða staðsett í hjarta miðbæjarins í Grjótagötu 4. Í húsinu eru fj...
Meira






