Ráðstefnur og fundir

Umhverfið er hvetjandi og eflir skapandi hugsun og frumkvæðni
Ef þú þarft að halda minni ráðstefnu eða þig vantar stað fyrir viðskiptafund í skemmtilegu og hvetjandi umhverfi að þá er sögufræga landnámssetrið á Hótel Reykjavík Centrum tilvalinn.
Aðstaðan á Hótel Reykjavík Centrum hentar vel fyrir ýmis konar tilefni eins og t.d. viðtöl, sölufundi, þjálfun söluhópa, vörukynningar,  minni ráðstefnur, aðalfundi eða fyrirtækjafundi.

Fundaraðstaðan er til fyrirmyndar og tekur að hámarki 50 manns í sæti. Allur nauðsynlegur tækjabúnaður til funda og ráðstefnuhalds er af bestu gerð. Á hótelinu eru tveir ráðstefnusalir; annar sem tekur 14 manns í sæti og hinn salinn má stilla upp eftir tilefni og getur hann tekið við allt að 40 manns í sæti.

Forsetastofa
Fundarherbergi með stóru eikarlangborði og 14 góðum sætum.  Tækjabúnaður af bestu gerð. Tengingar til staðar í borðinu fyrir plasmaskjá og tölvur. Staðlaður búnaður til staðar er flettitafla, blað og pennar.
 
Fógetastofa
Lítill ráðstefnusalur sem tekur allt að 40 manns í bíó-uppsetningu og 28 í skólastofu.
Staðlaður búnaður í sal er púlt, hljóðkerfi í púlti, fletti- og tússtafla, myndvarpi og hátalarakerfi.

Upplýsingar um stærðir ráðstefnu- og fundaaðstöðuna á Hótel Reykjavík Centrum. PDF skjal.
Fundargestir okkar geta notið veitinga á veitingastaðnum okkar Fjalakettinum.
Barinn okkar Uppsalir er tilvalinn fyrir móttökur og til að hafa það huggulegt.

Senda fyrirspurn
Frekari upplýsingar og bókarnir hafið þá samband í síma  514-6000 eða sndið póst póst.
more

Fréttir og tilboð

Sumarmatseðill á Fjalakettinum

Sumarið er komið á Fjalakettinum og matreiðslumeistararnir hafa sett saman sumarlegan matseðil . ...

Meira