Junior Suite

Junior svítan á Hótel Reykjavík Centrum

Junior svítan er ca. 35 fm með öllum helstu þægindum sem völ er á. Svítan er á tveimur hæðum í Fjalakattarhúsinu.  Á neðri hæð er setustofa, með sjónvarpi, svölum og baðherbergi. Á efri hæð er svefnherbergi með skrifborði, og auka sjónvarpi og síma.

Herbergin eru með öllum nútímaþægindum svo sem gervihnattasjónvarpi, Pay-TV, síma, míni-bar, útvarpi, straujárni og strauborði, öryggishólfi og te og kaffisetti.  Herbergin eru öll parketlögð og veggfóðruð. Baðherbergi fylgja öllum herbergjum, ýmist búin sturtu eða baðkari. Baðherbergin eru flísalögð hátt og lágt.

Junior svíturnar eru tilvaldar fyrir sérstök tilefni eins og brúðkaupsnóttina eða rómantíska nótt.