Double deluxe
Tveggja manna deluxe herbergi
Deluxe herbergin eru stærri með hægindastólum og 180 cm. rúmi eða svefnsófa, tilvalin fyrir fjölskyldur eða þá sem kjósa aukin þægindi. Heildarstærð um 25-30 fm. Hámarksfjöldi í herbergi er 3 einstaklingar.
Herbergin eru með öllum nútímaþægindum svo sem gervihnattasjónvarpi, Pay-TV, síma, míni-bar, útvarpi, straujárni og strauborði, öryggishólfi og te og kaffisetti. Herbergin eru öll parketlögð og veggfóðruð.
Baðherbergi fylgja öllum herbergjum, ýmist búin sturtu eða baðkari. Baðherbergin eru flísalögð hátt og lágt.







