Fjalakötturinn

Fjalakötturinn er staðsettur í nýbyggðu húsi við Aðalstrætið sem byggt var að fyrirmynd Fjalakattarhússins sögufræga.  Gestir fá að upplifa alvöru Reykjavíkurstemmingu fullkomnaða með fyrsta flokks þjónustu og matseðli.  Fjalakötturinn býður upp á alþjóðlegt eldhús og fjölbreytni úr úrvals íslensku hráefni.  Áhersla er lögð á fagmennsku og gott vín úrval.  Þar má finna árgangavín seld á góðu verði.  Fjalakötturinn hefur einmitt verið sæmdur verðlaunum fyrir vínseðil frá Wine Spectator.

Notalegur bar; Uppsalir er við hlið Fjalakattarins þar sem gestir geta fengið sér minni og léttari rétti, slakað á og notið þess að fá sér drykk fyrir eða eftir matinn í huggulegu umhverfi gamla Aðalstrætis 16.

Fagmennskan í fyrirrúmi.  Á Fjalakettinum er lögð áhersla á fagmennsku og gott úrval af vín.  Veitingastjóri staðarins er Jóhannes Baldursson og leggur hann metnað sinn í að hafa fyrsta flokks þjónustu í þægilegu umhverfi.

Opið er á Fjalakettinum alla daga fyrir morgunverð, hádegsverð og kvöldverð. 

Hér má skoða matseðlana á Fjalakettinum

Fjalakötturinn er reyklaus staður.                        

Borðapantanir í síma 514-6060

more

Fréttir og tilboð

Sumarmatseðill á Fjalakettinum

Sumarið er komið á Fjalakettinum og matreiðslumeistararnir hafa sett saman sumarlegan matseðil . ...

Meira